09.09.1913
Efri deild: 50. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1055 í B-deild Alþingistíðinda. (2305)

38. mál, stjórnarskipunarlög

Sigurður Stefánsson:

Með því að jeg hef hugsað mjer að koma fram með breytingartillögur við frv., vildi jeg leyfa mjer að mælast til, að málið yrði tekið út af dagskrá og látið bíða þar til á morgun, þar sem jeg vegna fjárlaganefndarstarfa og annríkis hef ekki haft færi á að koma fram með þær fyrir þennan fund.