04.07.1913
Neðri deild: 3. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 35 í C-deild Alþingistíðinda. (24)

2. mál, fjáraukalög 1910 og 1911

Ráðherrann (H. H.):

Þetta frv. stendur í nánu sambandi við reikningslagafrv., og álít eg sjálfsagt að því verði, eins og tízka er til, vísað til sömu nefndar, sem hefir það til meðferðar.

Eg hefi ekkert sérstakt að athuga Við þetta frv., en læt mér nægja að Vísa til þess, sem fram er tekið í landsreikningnum og athugasemdum yfirskoðunarmanna.