13.09.1913
Sameinað þing: 7. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 39 í B-deild Alþingistíðinda. (2478)

86. mál, aðflutningsbann á áfengi

Ráðherra:

Breyting sú, er háttv. Ed. hefur gert á þessu frv., er engin efnisbreyting, heldur aðeins lagfæring á villu, er komst inn í frv. hjer við síðustu umr. vegna þess, að í brtill. hjer var nefnd 1. gr. í stað 2. gr. Þetta hefði mátt skoða sem prentvillu, hefði því verið veitt eftirtekt hjer. Nú hefur þetta verið sett í rjett form, og vona jeg það nái samþykki þannig.