08.09.1913
Neðri deild: 54. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2288 í C-deild Alþingistíðinda. (2551)

97. mál, fátækralög

Framsm. (Kristinn Daníelsson):

Umræðurnar við 2. umr. þessa máls urðu all-ítarlegar, og hefi eg engu þar við að bæta. Frumvarpið hlaut þá samþykki háttv. deildar, og ég vona að það njóti sömu velvildar áfram og verði nú samþykt.