08.09.1913
Neðri deild: 54. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2300 í C-deild Alþingistíðinda. (2568)

114. mál, íslensk lög verði eftirleiðis aðeins gefin út á íslensku

Jón Ólafsson:

Herra forseti! Það gleður mig að heyra, að háttv. flutningsmaður (B. J.) hefir ekki meira um málið að segja, og verð eg því að álita, að hann sé að þrotum kominn með röksemdirnar sínu máli til stuðnings.