11.09.1913
Neðri deild: 57. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2487 í C-deild Alþingistíðinda. (2659)
1. mál, fjárlög 1914 og 1915
Bjarni Jónsson:
Það er að eins lítil athugasemd, sem mér gleymdist áðan. Eg sé að fjárlaganefndin hefir, auk þess sem eg nefndi áðan, gert þá breytingu á kaupgjaldi Guðmundar heimspekinga Finnbogasonar, sem er illa til fundin, og vænti eg að háttv. deild láti sitja við þá ráðstöfun í þessu efni, sem kom frá Ed. Nefndin fór svo skringilega að um daginn, að hún bætti 500 kr, við kaup hans fyrir bókavarðastarfið, en kipti af honum 600 kr. styrk, sem hann hefir haft til útgáfu heimspekisrita. Þetta var lagfært í Ed., þannig, að bókavarðarkaupið var sett 2000 kr. sem er, eina og allir vita, ekki of mikið hér í Reykjavík, og auk þess veitti deildin honum aftur 600 kr. styrkinn til útgáfu heimspekirrita. Nú sé eg að nefndin leggur til að kaupgjaldið sé fært niður í 1800 kr., en 600 kr. styrkurinn haldist. Þetta er algerlega óviðeigandi þegar um jafngóðan rithöfund er að ræða og Guðmund Finnbogason. Það er fullilt, að hann skuli þurfa að vinna annarlegt starf sínu aðalstarfi, þó að honum sé ekki jafnframt goldið skammarlega lítið kaup fyrir það. Menn verja ekki 16–20 árum af ævi sinni til undirbúnings undir ævistarf sitt til þess að leggja það á hilluna að náminu loknu. Við eigum eina tvo heimspekinga. Annar þeirra Ágúst Bjarnason er nú betur settur, kominn í góða stöðu, þar sem hann getur ævilangt, óhindraður, unnið að starfi sínu. En það getur ekki réttlætt að kosti Guðmundar sé þröngvað framar en þörf er á. Eg vænti þess vegna, að háttv. deild láti sitja við ráðstöfun Ed. Þessa gleymdist mér að láta getið í ræðu minni áðan.