13.09.1913
Neðri deild: 59. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 2517 í C-deild Alþingistíðinda. (2677)
127. mál, skipun nefndar í slysfaramálum
Einar Jónsson:
Eg er á móti því, að þessi nefnd verði skipuð, og get ekki hugsað mér, að nefndin forði neinum frá slysum. Hún yrði aldrei annað en einskis nýt. Spurningin yrði alt af: hvernig stóð á þessu slysi, og svarið yrði: ef maðurinn hefði ekki gert þetta, þá hefði slysið ekki orðið. En fari nú svo, að þessi nefnd verði sett á stofn, þá vildi eg æskja, að henni yrði skipað að rannsaka, hvernig á því stendur, að sumir háttvirtir þingmenn hér í deildinni mannskemma sig á því, að »fornerma« samþingismenn sína með því að gera þeim allra handa getsakir, svo sem að þeir hringli með atkvæði sitt og þar fram eftir götunum Að þessu verkefni sleptu, get eg ekki annað séð, en nefndarskipunin sé alveg gagnslaus.