23.07.1913
Neðri deild: 17. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 331 í C-deild Alþingistíðinda. (277)

73. mál, skoðun á síld

Pétur Jónsson:

Mér finst, að úr því það er meiningin, að setja nefnd í sjávarútvegsmál yfirleitt, þá væri eðlilegast að vísa þessu máli til slíkrar nefndar. En úr því að þetta frv. er nú þannig orðið á undan, dettur mér í hug sú leið, að það sé látið ganga til 2. umr. og geymt nefndarlaust, þangað til búið er að kjósa þessa nefnd, sem eg gat um.