24.07.1913
Neðri deild: 18. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 361 í C-deild Alþingistíðinda. (304)

67. mál, líftrygging sjómanna

Flutningsm. (Matthías Ólafsson):

Eg Vildi að eina leiðrétta þann misskilning hjá háttv. þm. Snæf. (H. St.), að eg hafi sagt, að þetta mál hefði komið of seint til Fiskifélagsins frá stjórninni. Eg sagði ekkert um það. Og eg veit ekkert um, hvenær Fiskifélagið hefir fengið málið frá stjórninni. En eg held að stjórnin hafi leitað sér svo góðra upplýsinga, að hún sitji nú inni með allgóða þekkingu á málinu.