29.07.1913
Neðri deild: 21. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 514 í C-deild Alþingistíðinda. (385)

27. mál, vatnsveitingar

Framsögum. (Pétur Jónsson):

Eg býst við, að háttv. þingdeildarmenn hafi lesið þetta frv. Er það upphaflega komið frá stjórninni, hefir legið fyrir háttv. Ed. og þar verið gerðar á því ýmsar breytingar. Þetta mál er talsvert þýðingarmikið fyrir landbúnaðinn, vegna þess að lagaákvæði vantar um þetta efni. Það er því þörf að athuga það ítarlega, og mun rétt að kjósa í það 5 manna nefnd.