05.08.1913
Neðri deild: 26. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 722 í C-deild Alþingistíðinda. (531)
43. mál, samþykktir um hringnótaveiði
Framsögum. meiri hl. (Stefán Stefánsson):
Það hafa mjög litlar upplýsingar komið fram í þessu máli frv því við 1. umr. Eg tók ekki eftir neinu sérstöku frá þessum mótstöðumanni málsins, sem seinast talaði. Jú, eg tók eftir að hann sagði, að málið væri ekki bygt á neinu viti. Hann þykist líklega sitja inni með alt vit á málinu. En hvorir skyldu hafa meira vit á því, þeir sem lengi hafa stundað fiskiveiðar á Eyjafirði eða hann, sem hefir að eins dvalið sem gestur 1–2 ár, ýmist á skólabekk eða sem veitingaþjónn ? Nei, það verður naumast sagt, að slíkt sé þingmannlega mælt, og það af manni, sem vitanlega hefir engu meiri þekkingu á slíkum hlutum en alment gerist. Að segja, að sú aðalstefna, sem kemur fram í þessu máli, sé ekki bygð á neinu viti, er því eins og hvert annað marklaust hjal. Ef það er talið gaspur, að flytja mál fjöldans, þá er það þó miklu fremur gaspur, að flytja mál einstakra fárra manna, sem að eins líta á sinn eigin hag. Og hér er það fjöldinn, sem óskar þessara laga, en ekki einstakir menn, sem vilja koma í veg fyrir að óskum og kröfum fjöldans verði framgengt. Þeir sem reka þessa veiðiaðferð, eru vitanlega að eins nokkrir Reykvíkingar og Akureyringar, og frá þeim stafar aðallega mótstaðan, en fjöldinn á Akureyri fylgist með af því, að þar hafa menn atvinnu af því að verka síld, en allur almenningur út með Eyjafirði að austan og vestan má ekki gjalda þess. — sem sagt, eg tók ekki eftir að mótstöðumaður þessa máls hefði neitt nýtt, eða jafnvel nýtilegt fram að bera. Eg sé því ekki ástæðu til að fjölyrða þetta frekar, enda hygg eg, að menn séu nú búnir að átta sig á þessu máli.