05.08.1913
Neðri deild: 26. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 752 í C-deild Alþingistíðinda. (559)

85. mál, lögreglusamþykkt og byggingarsamþykkt fyrir Vestmannaeyjasýslu

Flutningsm. (Jón Magnússon):

Háttv. 1. þm. Rvk. (L. H. B.) hefir ekki tekið vel eftir því sem eg sagði. Eg sagði einmitt, að til væri leið til þess að fá þessu framgengt án sérstakra laga, en þá yrði það hreppsnefnd, er semdi samþyktirnar í fyrstu. En það virðist eðlilegt, eftir því sem þar til hagar, að það sé sýslunefndin, sem semji þessar samþyktir. Sýslunefndin hefir því beðið mig að bera málið fram í þessu formi.