06.08.1913
Neðri deild: 27. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 803 í C-deild Alþingistíðinda. (615)
57. mál, girðingar
Kristinn Daníelsson:
Eg ætlaði að eina að gera örstutta athugasemd út af því sem háttv. 1. þm. S.-Múl. (J. Ól.) sagði. Þótti mér hann ganga helzt til langt í að ámæla fyrv. stjórn. Í lögunum var stjórninni heimilað að ákveða, hver orð mætti nota jafnhliða inum útlendu. Skil eg svo, sem stjórninni væri í sjálfsvald sett, hver heiti hún veldi, og að hún hafi með auglýsingunni ákveðið, ekki að það skyldi nota þessi orð, heldur að þau orð, sem nota mætti í stað hinna útlendu, skyldu vera þessi. Að minsta kosti má skilja það svo. Hitt játa eg með háttv. þm. (J. Ól.), að hér hefði átt að nota þau orð, sem þannig var búið að ákveða.
Eg fyrir mitt leyti get ekki af þessum ástæðum greitt atkv. með till. hv. þm. Dal. (B. J.), þó mér þyki það leitt, því eg er honum sammála um, að útlendu heitin séu óalanndi og óferjandi.
Eg ætla svo ekki frekara að fara að rökræða þetta mál, enda hefir það svo mjög verið gert, en vildi að eins lýsa yfir því, að mér þótti vænt um breyt.till. háttv. þm. Dal., sem mér þykir fara í rétta átt. Eg ætla svo ekki að tala um önnur atriði málsins, en atkvæðagreiðslan mun sýna afstöðu mína til þeirra.