07.08.1913
Neðri deild: 28. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 827 í C-deild Alþingistíðinda. (644)
42. mál, stofnun landhelgissjóðs Íslands
Kristinn Daníelsson:
Eg vil geta þess, að nefndin hefir ekki sérstaklega íhugað þetta atriði. Þetta frumvarp er komið hingað frá háttv. Ed., og eg skal geta þess í sambandi við þetta, að fram hefir komið ósk frá einum háttv. þm. þar, sem flutti annað frumvarp skylt þessu, um að þegar að því kæmi að löggjafarvaldið tæki ákvörðun um þetta fé á sínum tíma, þá yrði sett inn ákvæði um, að það skyldi gert í samráði við Fiskifélag Íslands. Það er sjálfsagt, að taka tillit til þessarar athugasemdar hæstv. ráðherra, og við 3. umr. mætti athuga þetta, og þá um leið þessa ósk, sem eg gat um.