07.08.1913
Neðri deild: 28. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 833 í C-deild Alþingistíðinda. (657)

91. mál, kornforðabúr til skepnufóðurs

Bjarni Jónsson:

Eg óska ekki að halda ræðu um breyt.till. mínar, ef tillaga háttv. þm., er nú settist (P.J.), nær fram að ganga. Eg efast ekki um að lögunum má koma betur fyrir, ef þau verða athuguð í nefnd. Eg hirði ekki um hvort málinu verður vísað til þeirrar nefndar, sem stungið, var upp eða á, ný nefnd verður sett, — mér stendur öldungis á sama um það.