07.07.1913
Neðri deild: 5. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 82 í C-deild Alþingistíðinda. (66)
15. mál, laun íslenskra embættismanna
Jón Ólafsson:
Herra forseti! Eg er ekki fyllilega samdóma sumu af því sem sagt hefir verið móti frv. í dag, þó eg geti tekið undir margt af því. Ekki er eg heldur fyllilega samdóma hæstv. ráðherra (H. H.) um það, að algerlega ástæðulaust sé að segja, að með frumv. þessu sé byrjað að ofan. Sumir líta svo á, sem kennarar mentaskólans, sem allir játa að hafi fylstu þörf á launaviðbót, séu notaðir eins og nokkurs konar dufl eða flotholt til að fleyta þeim hálaunuðu í gegn um þingið.
Eg vil mæla með, að málið verði sett í nefnd. Hygg að það sé m. a. gott Verkefni fyrir nefnd, að kljúfa frumv. í tvent, taka kennarana sér, því þeir geta ekki lifað við þau launakjör, sem þeir eiga við að búa, og hina sér. Myndi það hafa verið réttara, að málið hefði komið þannig útbúið frá stjórninni. Í annan stað myndu ítarlegar röksemdir með og móti frumvarpinu koma fram í nefndinni, og væri það réttara gagnvart þeim embættismönnum, sem í hlut eiga, og þjóðinni, að þm. gæfist kostur á að afmarka sem glöggast afstöðu sina, ekki að eins til frumvarpsins í heild sinni, heldur og til einstakra liða þess.
Eg leyfi mér því að stinga upp á 5 manna nefnd, hvað sem svo verður um frumvarpið.