08.08.1913
Neðri deild: 29. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 856 í C-deild Alþingistíðinda. (688)

43. mál, samþykktir um hringnótaveiði

Bjarni Jónsson:

Ekki er eg svo hálsliðamjúkur, að eg geti snúist með þessu frumvarpi, þótt svæðið hafi verið minkað, sem samþyktin á að gilda um. Ekki er dregið úr grundvallarákvæðinu fyrir það. Og þótt séð sé fyrir Akureyri, þá er það ekki til bóta fyrir þá sem gera út skip héðan til veiða þar. Það þykir mér in mesta óhæfa, að lög séu gerð, sem heimili einum landshluta í sambandi við leppaða og óleppaða útlendinga að banna öllum öðrum landshlutum að stunda veiði þar. Og mun eg aldrei ljá slíkum lögum liðsinni mitt.