11.08.1913
Neðri deild: 31. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 930 í C-deild Alþingistíðinda. (752)
27. mál, vatnsveitingar
Kristinn Daníelsson:
Eg vildi leyfa mér að segja fáein orð um br.till. háttv. nefndarinnar, og þó að þær séu ekki neinar efnisbreytingar, þá er þó ekki rétt að breyta, ef ekki er til bóta eða ef til Vili heldur ins hagstæða.
1. br.till. við 2. gr. frumv., að orðin: »enda verði henni ekki breytt . . . . gerðarbeiðandi telst, falli burt«, tel eg ekki til neinna bóta. Hér er verið að tala um skaðabætur, sem maður getur krafist, telji hann sig bíða einhvern skaða af áveitu. Það atriði verður því að vera glögt og sé eg ekki að br.till. geri það neitt skiljanlegra, eða sé neitt til bóta.
5. br.till. við 6. gr., að jarðarstærð komi í staðinn fyrir jarðarmagn, hygg eg, að geti breytt meiningu frumv„ sem mér hefir skilist að ekki væri til ætlast. Stærð jarðar er annnað en magn hennar. Með orðinu stærð er átt við stærð hennar að flatarmáli, en við magn hennar, nota gildi hennar.
6. gr. br.till., að í stað: »skal«, komi »má«, er heldur ekki til neinna bóta. Er það gott að það sé ákveðið að eignarnámið skuli fara fram innan 5 mánaða frá birtingu matsgerðar.
Ef til vill hefir mér ekki skilist þetta rétt, en hafi eg gert það, þá sé eg ekki neina bót á frumv. með 1., 5. og 6. breytingartillögunum.