11.08.1913
Neðri deild: 31. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 931 í C-deild Alþingistíðinda. (753)

27. mál, vatnsveitingar

Benedikt Sveinsson:

Mér þykir það undarlegt, a,ð meiri hluti nefndarinnar skuli leggjast á móti breyt.till. á þgskj. 312. Eg fæ ekki séð, hversu réttlætt verði að leggja svo þunga kvöð á landsdrottinn sem 18. gr. frumv. gerir. Það nær ekki nokkurri átt að heimila eignarnám á jörðum, þá er skorast er undan greiðslu áveitukostnaðarins. Með því að heimila lögtak fyrir kostnaðinum er fyllilega náð tilganginum, eina og br.till. á þgskj. 312 fer fram á, og því á hún fram að ganga.