07.07.1913
Neðri deild: 5. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 89 í C-deild Alþingistíðinda. (76)

10. mál, verðlag

Ráðherrann (H. H.):

Alt, sem um þetta frumv. þarf að segja, er tekið fram í athugasemdunum við það, svo að eg get látið mér nægja að vísa til þeirra.

Eg skal leyfa mér að stinga upp á að þessu máli verði eins og málinu á undan vísað til skattamálanefndarinnar, að þessari umr. lokinni.