13.08.1913
Neðri deild: 33. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1140 í C-deild Alþingistíðinda. (852)

81. mál, bæjarstjórn í kaupstaðnum Reykjavík

Jón Jónsson:

Það er að eins örstutt athugasemd, Sem eg ætla að gera við ræðu háttv. þingm. V.-Ísf. (M.Ó.), Viðvíkjandi því sem hann sagði um að flokkssamþykt hafi verið gerð af Heimastjórnarflokknum um að fella skattafrumvörpin.

Eg get lýst yfir því sem skrifari flokksins, að það hefir aldrei borið á góma á fundum flokksins, hvað þá heldur að það hafi verið borið undir atkv. eða gerð um það nokkur samþykt.