16.08.1913
Neðri deild: 36. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1274 í C-deild Alþingistíðinda. (968)

1. mál, fjárlög 1914 og 1915

Ráðherrann (H. H.):

Eg var ekki inni þegar háttv. 1. þm. Rvk. (L. H. B ) var að tala, en eg hefi heyrt að hann hafi vefengt tölur þær sem eg gat um, viðvíkjandi útgjaldahækkuninni.

Eg fór rétt með tölurnar áðan eftir þeim tillögum; sem þá lágu fyrir, og hygg þær hafi ekkert breyzt siðan. Ef háttv. þm, vildi telja saman á þeim breyt.till., sem komnar eru fram, hve miklu hækkunin nemur, þá mundi hann fá sama út sem eg hefi fengið.