16.08.1913
Neðri deild: 36. fundur, 24. löggjafarþing.
Sjá dálk 1276 í C-deild Alþingistíðinda. (971)

1. mál, fjárlög 1914 og 1915

Ráðherrann(H. H.):

Viðvíkjandi samanburði hv. 1. þm. Rvk. (L. H. B.) skal eg geta þess, að eg var alls ekki að saka háttv. fjárlaganefnd um neitt. Eg gat þess eingöngu, að eg hefði reiknað saman brtill., bæði tillögur nefndarinnar og tillögur einstakra þingmanna, og nefndi, hver tekjuhallinn yrði, ef þær yrðu allar samþyktar.