03.08.1914
Neðri deild: 33. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 1051 í B-deild Alþingistíðinda. (1046)

33. mál, vegir

Frams.m. (B. J.):

Eg lýsi það ósatt, að eg hafi nokkrar upplýsingar gefið um það, hver kostnaðurinn yrði við breyting þessa vegar. En þótt eg kunni að gamni mínu að hafa látið ein. hver orð falla í eyru háttv. 1. þm. Rang. (E. J.), til þess að draga hann á eyrunum, þá er ekki farandi eftir því og óþinglegt að draga slíkt inn í umræður.