25.07.1914
Neðri deild: 21. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 1137 í B-deild Alþingistíðinda. (1129)
81. mál, skoðun á útfluttri ull
Bjarni Jónsson:
Á undanförnum þingum hefir lýst sér allmikill áhugi á því, að bæta verzlun landsins, bæði í þessu efni og öðru. Má í því sambandi meðal annars minna, á fjárveitinguna, sem ætluð var einum manni til þess að kynna sér verkun á ull og markað fyrir hana. Eg veit, að þingmenn vilja gjarna fá ullarmetsmenn, enda hafa menn reynsluna fyrir sér, þar sem fiskimetsmennirnir eru, og alt það dæmalausa gagn, sem þeir hafa unnið landinu. Mér er sagt, að í Miðjarðarhafslöndunum væri sú vara algerlega óseljanleg, ef ekki kæmi til álit metsmanna, svo mikla trygging gefur það fyrir hærra og vissara verði. Sama yrði sjálfsagt ofan á með ullarmetið, þegar það hefði staðið nokkur ár. Markaðurinn yrði vissari og betri. Eg vil því lýsa ánægju minni yfir því, að þessi till. er hér fram komin.
Það getur vel verið, að það nægi, að semja og samþykkja þessa till., og að ekki sé rétt að setja lögin nú þegar. Hefði eg þó frekar búist við því, þar sem hr. Sigurgeir Einarsson hafði gefið háttv. tillögumönnum bendingar og samið uppkast að lagafrumv., en í því þýðir ekkert að rekast, hvort þessi þarfa réttarbót dregst um eitt ár, eða ekki. Eg tel það gott, að ýta undir stjórnina með það, að láta semja slíkt frumvarp sem þetta. Eg held, að hún iðrist aldrei eftir því, þótt hún kosti einhverju til þess, að bæta verzlun landsins og atvinnuvegi. Eg held, að menn hafi hingað til reiknað of smátt í því efni, verið hræddir við það, að leggja tuginn í sölurnar til þess að græða þúsundirnar. Þeir hafa ekki skilið það fyrri en fiskimetsmennirnir komu til sögunnar, hverja þýðing það hefir að eiga metsmenn, eða aðra slíka erindreka fyrir landsins hönd. Fjárveitingar allar til slíkra hluta hafa ætíð verið taldar eftir, hversu lúsarlegar sem þær hafa verið, — og það hafa þær allar verið — líka sú stærsta. En það er ekki talið, sem kemur í staðinn, og er það þó vanalega þúsundfalt, þótt ekki sé hægt að sýna það reikningslega.
Þessar almennu athugasemdir vildi eg láta fylgja tillögunni. Að sjálfsögðu fylgi eg henni, og vona, að hún verði til þess, að ullarmet komist á sem fyrst.