25.07.1914
Neðri deild: 21. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 1141 í B-deild Alþingistíðinda. (1133)

81. mál, skoðun á útfluttri ull

Bjarni Jónsson:

Eg hafði ekki neitt atyrt háttv. flutningsm. tillögunnar, en vildi aðeins, að Sigurgeir Einarsson hefði undirbúið málið svo, að það hefði getað komið fram í frumvarpsformi á þessu þingi. Eg get vel fallist á þá ástæðu, sem sagt var frá, að aftrað hefði því að þessu sinni.