04.07.1914
Efri deild: 3. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 36 í B-deild Alþingistíðinda. (1314)
77. mál, notkun bifreiða
Ráðherra (Hannes Hafstein) :
Eins og mönnum er kunnugt, er örstutt síðan fyrst var farið að nota bifreiðar hjer á landi. En notkun þeirra hefir aukist mjög hröðum fetum, og líkindi mikil til, að noktun þeirra fyrir almenning fari ört vaxandi. En meðferð bifreiða er engan veginn á allra meðfæri, og þær geta haft allmikla hættu í för með sjer á ýmsan hátt. Í öðrum löndum hafa því verið settar ítarlegar reglur um notkun þeirra, um hvernig þær skuli vera gerðar, hvaða skilyrðum menn þurfi að fullnægja, til þess að mega stjórna þeim, hversu hratt þær megi fara, hvernig þær skuli haga sjer, til þess að valda sem minstum baga fyrir aðra vegfarendur, og hver bera skuli ábyrgð á slysum og tjóni, er þær kunna að valda. Hjer á landi er nú að verða samskonar þörf á slíkum ákvæðum, og þetta frumvarp er samið í því skyni að bæta úr þeirri þörf. Að öðru leyti leyfi jeg mjer að skírskota til ástæða stjórnarinnar, sem prentaðar eru aftan við frv.