23.07.1914
Efri deild: 16. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 43 í B-deild Alþingistíðinda. (1326)

58. mál, skipströnd

Júlíus Havsteen :

Það er merkilegt mál, sem hjer er komið fram, og þarf að íhugast vandlega, af því þau ákvæði, sem um það eru í lögum vorum, eru mjög stutt og ófullnægjandi, mun þau sem sje að eins vera að finna í Jónsbók, Farmannalögum, 11, kap.

Jeg vil því stinga upp á að þriggja manna nefnd verði skipuð í málið að lokinni umr.