29.07.1914
Efri deild: 21. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 144 í B-deild Alþingistíðinda. (1463)
16. mál, beitutekja
Framsögum. (Sigurður Stefánsson) :
Við nánari athugun þykist jeg sjá, að ef brtt. háttv. þm. Barð. (H. K.) verður samþykt, þá sjeu þar með öll ákvæði um netlög úr lögum numin, og hver sem vildi mætti þá taka beitu hvar sem er uppi í landsteinum. — Og hvað ætlar háttv. þm. (H. K.) sjer að vinna með brtt., úr því hann er þeirrar skoðunar, að netlagaákvæðið úr veiðitilsk. frá 1849 sje enn þá í gildi? — Jeg hlýt því að greiða atkvæði á móti brtt. — Háttv. þm. Seyðf. vil jeg svara því, að það er alveg rjett, að jeg hefi stundum orðið að berjast við flugur á þessu þingi. Breytingartillögur hans hafa flogið eins og flugur hjer um deildina, og flestar hafa þær átt skilið að drepast eins og lýs undir nögl.