04.08.1914
Efri deild: 31. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 176 í B-deild Alþingistíðinda. (1537)

2. mál, sauðfjárbaðanir

Hákon Kristófersson:

Jeg hefi nú á þessu augnabliki sjeð verðskrá stjórnarráðsins yfir baðlyf. Jeg verð að segja, að jeg er meira en lítið hissa á henni. Eftir að hafa sjeð hana, hlýt jeg að greiða atkvæði með 3. gr. frv.