29.07.1914
Efri deild: 21. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 177 í B-deild Alþingistíðinda. (1544)
73. mál, skipaveðlán
Karl Einarsson:
Jeg ætla aðeins að skýra háttv. deild frá, að jeg hef gjört fyrirspurn um, hvaða veð landssjóður ætti að fá. Jeg hefi fengið þær upplýsingar, að erlendir bankar ætli að lána 600,000 kr., sem svo bankarnir hjer og landssjóður eigi að ábyrgjast. Bankarnir hjer eiga svo að fá 1. veðrjett í skipunum, en láta síðan landssjóð fá ¼ hluta hans. Þetta kemur ekki nógu glögt fram í frv. og þess vegna vildi jeg skýra hv. deild frá þessu.