28.07.1914
Neðri deild: 23. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 179 í B-deild Alþingistíðinda. (155)

77. mál, notkun bifreiða

Einar Arnórsson:

Gagnstætt hv. síðasta ræðumanni (B. J.), verð eg að halda því fram, að nauðsyn beri til, að setja nefnd í málið. Það er ef til vill eitthvað við frv. að athuga, enda er málið allþýðingarmikið, og vil eg leyfa mér að leggja til, að kosin verði 5 manna nefnd.