11.08.1914
Efri deild: 38. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 219 í B-deild Alþingistíðinda. (1652)

83. mál, styrkur fyrir Vífilsstaði

Björn Þorláksson:

Af því að þetta er brtt. við mína brtt. sje jeg ástæðu til að standa upp. Jeg hafði áður lýst því yfir, að jeg mundi ekki greiða atkv. með frv. ef mín brtt. yrði ekki samþykt, en nú er svo komið, að jeg get sætt mig við þessa miðlunartillögu og mun jeg greiða atkv. með frv. þótt hún komist að.