13.08.1914
Efri deild: 42. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 234 í B-deild Alþingistíðinda. (1699)
114. mál, atkvæðagreiðsla við alþingiskosningar
Karl Einarsson:
Það er raunar satt, að við athuguðum frumvarpið litið, en það er stutt og einfalt í sjálfu sjer.
Jeg hefi lesið það vandlega í gegn, fyrir utan það sem við bárum okkur saman. í nefndinni, og hefi jeg komist að þeirri niðurstöðu, að frumvarpið sje í engu verulegu frábrugðið lögum um sama efni annarstaðar, t. d. í Danmörku. Og jeg hygg það sje svipað í Noregi og Svíþjóð. Því mun ekkert varhugavert við að samþykkja það. En frá almennu sjónarmiði er nauðsynlegt að frumvarpið nái fram að ganga, þar sem það felur í sjer mikilsverðar rjettarbætur. Það er næsta hart, að menn skuli missa af kosingarrjetti sínum vegna atvinnu sinnar. En eins og hjer hagar til, er það mjög algengt, að fólk er í öðrum landsfjórðungum að leita sjer atvinnu, þegar kosningar fara fram, og það eins, hve nær sem kjördagur væri.
Stjórnarfrumvarpið náði að eins til sjómanna, en mjög auðvelt að breyta því svo, að það geti náð til allra, með því að sýslumenn, eða umboðsmenn þeirra, framkvæmi það, sem skipstjórum annars var ætlað að gjöra, að leiðbeina við kosningarnar.
Vil jeg þess vegna mælast til að háttv. deild samþykki frumvarpið með þessum sjálfsögðu breytingum.