05.08.1914
Neðri deild: 35. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 206 í B-deild Alþingistíðinda. (170)

77. mál, notkun bifreiða

Sigurður Sigurðsson:

Athugasemd sú, sem eg ætlaði að gera er sú, að mig langar til að minna háttv. 1. þm. Rang. (E. J.) á það, að kjósendur hans í Rangárvallasýslu munu ekki þakka honum fyrir það, að reka hér á þingi erindi bifreiðareiganda hér í Reykjavík. Að öðru leyti vil eg ekki svara hinu fávíslega hjali þingmannsins hér í deildinni áðan; það var svo nauða ómerkilegt.