05.08.1914
Efri deild: 32. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 310 í B-deild Alþingistíðinda. (1793)
71. mál, stofnun kennarastóls í klassískum fræðum
Karl Finnbogason :
Mjer finst það undarleg röksemdafærsla gegn frv. þessu, að hefta beri framgang þess, af því svo geti farið, að ekki verði hægt að borga embættismönnum, þeim sem nú eru, laun þeirra, og þá sje harla óviðkunnanlegt, að fara að stofna nú nýtt embætti, meðan horfurnar sjeu svona. Það má geta nærri, að engri stjórn mundi detta í hug að gjöra það, ef slíkt útlit væri, og sýnir það ekki lítinn skort á góðum og gildum röksemdum, að bera fram annað eins og þetta. Enda varla von að flutningsmanni verði auðfundin rök móti sínu eigin máli.