22.07.1914
Efri deild: 15. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 414 í B-deild Alþingistíðinda. (1907)
17. mál, bann gegn útflutningi á lifandi refum
Framsögum. meiri hl. (Karl Finnbogason):
Jeg get haft stutta framsögu fyrir þessu máli, því tvisvar er jeg búinn að láta álit mitt um það í ljós.
Í nefndaráliti meiri hlutans eru teknar fram hinar sömu ástæður og jeg færði við 1. umr. og fyrri hluta 2. umr., og jeg hefi ekki breytt skoðun minni á þeim, síðan jeg sá þær á prenti.
Hv. flm. (S. St.) sýndi mjer þá kurteisi um daginn, að svara mjer ekki öðru en því, að kalla rök mín lokleysur. En honum láðist að sýna mjer þá kurteisi að færa ástæður fyrir þessu. Jeg ætla því að bíða eftir, að hann gjöri það nú.