27.07.1914
Efri deild: 19. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 441 í B-deild Alþingistíðinda. (1932)

96. mál, bann gegn botnvörpuveiðum

Framsögum. Karl Einarsson :

Jeg hef engu við það að bæta, sem jeg sagði við síðustu umræðu þessa máls. Það fjekk þá svo góðar undirtektir, að jeg hygg óþarft að hafa langar umræður um það. En ef andmæli kynnu að koma fram gegn einstaka greinum frv., þá mun jeg reyna að svara þeim.