23.07.1914
Efri deild: 16. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 460 í B-deild Alþingistíðinda. (1960)

24. mál, bann gegn botnvörpuveiðum

Forseti:

Jeg sje mjer ekki annað fært en að skoða frv. nefndarinnar á þgskj. 135 sem nýtt frv., og verður það þá samkv. 9. gr. þingskapanna og 27. gr. stjórnarskrárinnar að ganga gegnum þrjár umræður hjer í deild.