20.07.1914
Efri deild: 13. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 471 í B-deild Alþingistíðinda. (1980)

70. mál, afnám eftirlauna

Flutningsm. (Hákon Kristófersson) :

Jeg ætla ekki að fara mörgum orðum um málið á þessu stigi þess, því jeg hygg að þess gjörist engin þörf. Jeg hefi orðið þess var, að það er vilji meiri hluta deildarinnar, að skipa nefnd í málið. Jeg álít því mikið umtal óþarft um tillöguna að þessu sinni, en vil leyfa mjer að leggja það til, að 3 manna nefnd verði skipuð í málið.