01.07.1914
Efri deild: 1. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 7 í B-deild Alþingistíðinda. (2)
Deildarsetning efri deildar
Björn Þorláksson:
Jeg get ekki sjeð að það sje neitt á móti því, að þessum fundi verði frestað, eða að það geti skaðað á nokkurn hátt. Jeg verð því að líta svo á, að þingið sje sett, þótt þessum fundi yrði frestað. Ef forseti þykist ekki hafa vald til þess að fresta þessum fundi á sitt eindæmi, þá vildi jeg óska að hann bæri það undir atkvæði deildarinnar, og má þá einnig fá leyfi hjá ráðherra, en annars man jeg ekki betur en að það standi í þingsköpunum, að forseti megi fresta fundi, og jeg get ekki sjeð að hjer sje um neitt annað að ræða en venjulega fundarfrestun.