24.07.1914
Neðri deild: 20. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 241 í B-deild Alþingistíðinda. (208)

2. mál, sauðfjárbaðanir

Pétur Jónsson:

Af því að háttv. 2. þm. Eyf. (St. St.) hefir skorað á mig, skal eg láta það í ljós, að eg álít br.till. fullnægja kröfum þeim, sem eg gerði til frumvarpsins við 2. umr., til þess að eg gæti orðið með því.