08.08.1914
Efri deild: 35. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 272 í B-deild Alþingistíðinda. (2185)
51. mál, vegir
Framsögumaður (Jósef Björnsson):
Jeg þarf ekki að fara mörgum orðum um mál þetta. Sú breyting, sem gjörð hefir verið á frumvarpinu í háttv. Nd., snertir að eins viðhaldið á flutningabrautinni milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar.
Hjer í deild var það samþykt, að landssjóður skyldi kosta viðhald vegarins að 1/3 hluta. Þessa viðhaldsskyldu landssjóðs hefir háttv. Nd. felt niður.
Þrátt fyrir þessa breytingu leggur nefndin til, að frumvarpið verði samþykt eins og það liggur nú fyrir.