16.07.1914
Neðri deild: 13. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 320 í B-deild Alþingistíðinda. (320)

14. mál, vörutollur

Sveinn Björnsson:

Með því að hér liggur fyrir til umræðu í dag annað frumvarp um breytingar á þessum sömu lögum, og sem eg býst við að sett verði í nefnd, þá dettur mér í hug, hvort ekki mundi viðeigandi að þessari 3. umræðu væri frestað, svo að væntanleg nefnd gæti tekið þessi bæði frumv. til íhugunar hvort í sambandi við annað.