10.07.1914
Neðri deild: 8. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 324 í B-deild Alþingistíðinda. (332)

25. mál, dómtúlkar og skjalþýðendur

Pétur Jónsson:

Eg vildi að eina vekja athygli hæstv. forseta á einu atriði, sem raunar kemur ekki þessu máli við, fremur en öðrum. Það hefir verið regla, að bera það fyrst upp til atkvæða, hvort vísa skuli máli til 2. umr., og síðan hitt, hvort skipa skuli nefnd. Eg álít að þetta sé líka viðkunnanlegra, þegar hvorttveggja fer saman.