16.07.1914
Neðri deild: 13. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 328 í B-deild Alþingistíðinda. (344)

38. mál, bæjarstjórn í kaupstaðnum Reykjavík

Flutningsm. (Sveinn Björnsson):

Það hafa engin andmæli komið fram gegn þessu frumv., og sé eg því ekki ástæðu til að fara frekari orðum um það en eg hefi gert við fyrri umræðurnar. Eg vil að eins nota tækifærið til að þakka háttv. deild, hvað málið hefir gengið greiðlega áfram, og þar á meðal háttv. þm. Dal. (B. J.). Vona eg, að málinu farnist eina vel í efri deildinni.