16.07.1914
Neðri deild: 13. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 334 í B-deild Alþingistíðinda. (358)
41. mál, sjódómar og réttarfar í sjómálum
Matthías Ólafsson :
Eg fæ ekki skilið, að þessi breyting á annari málsgrein 1. gr. sjódómslaganna, sem hér er farið fram á, miði til bóta, heldur þvert á móti. Mér finst það liggja nokkurn veginn í augum uppi, að þeir menn, sem vit hafa á Siglingamálum, sé betur hæfir til að dæma um slík mál, heldur en þeir menn, sem ekkert vit hafa á þeim. Eg verð þess vegna að leggjast á móti því að þessi brt. verði samþykt. Það kann að vera, að það sé nokkurum vandkvæðum bundið nú, að fá menn með slíkri þekkingu, en eg trúi ekki, að á löngu liði þangað til það verður hægt. Þangað til má bjargast við, að einn maðurinn í dómnum hafi þessa þekkinguna, en hinn hina. Sem sagt, þá álít eg að þessi brt. miði ekki til bóta heldur þvert á móti.
Hina breytinguna, sem frv. fer fram á, skal eg ekki deila um, enda hefi eg ekkert á móti því, að hún verði samþykt.