23.07.1914
Neðri deild: 19. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 338 í B-deild Alþingistíðinda. (367)

41. mál, sjódómar og réttarfar í sjómálum

Framsögum. (Sveinn Björnsson) :

Eg hefi engu við það að bæta, sem eg sagði um þetta mál við 2. umr. Þá var málið sett í nefnd, vegna dálítils misskilnings, sem var í frv. Nú hefir sá misskilningur verið leiðréttur, og nefndin leggur til, að frv. verði samþ. með þeirri lítilfjörlegu breytingu, sem lagt er til að gerð verði á 2. gr. Hún er að eins til þess, að bæta orðalag greinarinnar og hljóðar svo: þóknun meðdómenda sé greidd úr landssjóði.