06.08.1914
Neðri deild: 36. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 510 í B-deild Alþingistíðinda. (592)

15. mál, sveitarstjórnarlög

Framsögum. meiri hl. (M. Ó.):

Eg gleymdi að minnast á það áðan, að eg tel það sjálfsagt, að ákvæði frumv. snerti einnig stauranætur. Eg get þessa að eins út af orðum háttv. 2. þm. S.-Múl. (G. E.). Hvað því viðvíkur að brt. á þskj. 358 sé nauðsynleg, til þess að skýra frv., þá skal eg taka það fram, að eg sé engar líkur til þess, að lögin verði misskilin, þótt þetta frv. yrði að lögum, án þess að þessi brt. verði samþykt.