11.07.1914
Neðri deild: 9. fundur, 25. löggjafarþing.
Sjá dálk 893 í B-deild Alþingistíðinda. (855)
31. mál, þingsköp Alþingis
Pétur Jónsson:
Eg tel víst, að nefnd verði kosin í þetta mál, og vildi eg leyfa mér að skjóta til nefndarinnar til sérstakrar íhugunar, atriði, sem ekki liggur beint í þessu frumv., nefnilega því, hvernig haga skuli útgáfu alþingistíðindanna framvegis, að því er snertir niðurröðunina. Fyrir nokkrum árum var tekin upp sú venja, að hafa hvert mál og meðferð þess út af fyrir sig í umræðupörtum þingtíðindanna, og mun það vera ósk margra manna, að sú aðferðin mætti haldast. Hún hafði þann annmarka, að ekki var hægt að byrja á prentun fyrr en öll stærri mál vóru útkljáð á þinginu, en aftur á móti fylgdi henni sá kostur, að aðgengilegra var að lesa þingtíðindin. En nú hefir á seinustu þingum verið snúið að því ráði aftur, að gefa þau út með gamla hættinum, þannig að hver fundur er út af fyrir sig, og mun það hafa verið gert til þess, að unt yrði að prenta þau jafnóðum, svo þau mætti senda út um land, ekki síðar en um haustnætur. Þessi árangur hefir þó ekki fengist, og síður en svo. Eg þori að fullyrða, að í haust sem leið var ekki helmingur alþingistíðindanna kominn til manna út um land. Eg held, að hyggilegt væri að breyta nú aftur um, því að það er mun þægilegra fyrir lesendur þingtíðindanna, að hvert mál sé haft út af fyrir sig.
Þetta vildi eg óska að hin hv. nefnd tæki til íhugunar og gerði einhverjar tillögur í einhverju formi þessu viðvíkjandi.